Hannes Friðriksson

Helgi Bjarnason

Hannes Friðriksson

Kaupa Í körfu

ÞEGAR hafa að sögn Hannesar Friðrikssonar 2.000-2.500 manns á Suðurnesjum og í Hafnarfirði ritað nafn sitt á lista þar sem skorað er á sveitarstjórnarmenn á svæðinu að tryggja að Hitaveita Suðurnesja verði áfram í meirihlutaeigu sveitarfélaganna og annist áfram orkuöflun og sölu og dreifingu á vatni og rafmagni. Hannes, sem býr í Reykjanesbæ, átti frumkvæði að málinu en söfnunin hófst í gær. Sagði Hannes að nöfnin yrðu send til Sambands sveitarfélaga á Suðurnesjum og þar yrði hægt að sannreyna þau. Hannes sagðist hafa dreift listum sem ættu að duga allt að 3.000 manns en einnig væri hægt að rita undir áskorunina á vefsíðunni askorun2007.is. Ekki var vitað í gærkvöldi hve margir hefðu nýtt sér þann möguleika

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar