Afgangsmynt

Sverrir Vilhelmsson

Afgangsmynt

Kaupa Í körfu

BORGARSTJÓRI og fulltrúar borgarstjórnarflokkanna tæmdu afgangsmynt úr vösum sínum í Ráðhúsi Reykjavíkur í gær. Var þetta liður í myntsöfnun sem Rauði krossinn stendur fyrir um þessar myndir í samstarfi við Sparisjóðina, Póstinn og Iceland Express. Þetta er í fjórða sinn sem RKÍ og samstarfsaðilar standa fyrir slíkri myntsöfnun til mannúðaraðstoðar. Afrakstur söfnunarinnar nú rennur allur til verkefna RKÍ innanlands. Sérhannað umslag fyrir afgangsmynt eða seðla hefur verið sent á öll heimili í landinu. Það má láta ófrímerkt í póst eða skila því í næsta útibú Sparisjóðanna

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar