Síminn og Íslensk getspá semja

Árni Torfason

Síminn og Íslensk getspá semja

Kaupa Í körfu

SÍMINN og Íslensk getspá hafa undirritað samning um þjónustu á heildarfjarskiptum til þriggja ára. Samningurinn felur m.a. í sér breytingar á gagnaflutningstengingum í getrauna- og lottókassa sem mun hafa aukið rekstraröryggi í för með sér fyrir Íslenska getspá, að því er fram kemur í fréttatilkynningu MYNDATEXTI Á meðfylgjandi mynd undirrita samninginn þeir Brynjólfur Bjarnason fráfarandi forstjóri Símans og núverandi forstjóri Skipta, og Stefán Konráðsson, framkvæmdastjóri Íslenskrar Getspár. Fyrir aftan þá, frá vinstri, eru Gunnar Smith, viðskiptastjóri hjá Símanum, Björn Björnsson, yfirmaður tæknideildar hjá Íslenskri getspá, og Sævar Freyr Þráinsson, nýr forstjóri Símans.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar