Gosi í viðtali / Víðir Guðmundsson

Guðmundur Rúnar Guðmundsson

Gosi í viðtali / Víðir Guðmundsson

Kaupa Í körfu

Hafdís Hlín Víðisdóttir, 7 ára, og Júlía Mist Víðisdóttir, 3 ára, eru dætur hans Víðis Guðmundssonar sem leikur Gosa. Hafdís Hlín segir að það sé mjög gaman að eiga pabba sem er stundum Gosi en það sé líka svolítið skrýtið. Hann er leikur samt aldrei Gosa heima, hann er bara pabbi þar, segir Hafdís Hlín feimin. Henni finnst líka ekki eins og það sé Gosi sjálfur á sviðinu heldur bara pabbi að leika sér. Hafdís Hlín fær stundum að fara með pabba sínum í vinnuna og henni finnst það mjög skemmtilegt enda ekki öll börn sem fá að fara í leikhús þegar þau fara í heimsókn í vinnu foreldra sinna. Hafdísi Hlín þykir skemmtilegasta og mest spennandi atriðið í sýningunni vera þegar það kviknar í hvalnum og hún er viss um að allir krakkar muni hafa gaman af sýningunni.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar