Stjarnan - Valur

Stjarnan - Valur

Kaupa Í körfu

MEÐ fullu húsi áhorfenda, góðum stuðningi og álíka leik og ytra um síðustu helgi þá tel ég okkur eiga möguleika á að vinna þetta lið og komast áfram," segir Aðalsteinn Eyjólfsson, þjálfari kvennaliðs Stjörnunnar, um möguleika liðs hans í síðari viðureigninni við franska liðið U.S. Mios Biganos í EHF-bikarnum sem fram fer í Mýrinni í Garðabæ klukkan 16 á morgun. Í húfi er sæti í 16-liða úrslitum keppninnar. Stjarnan tapaði fyrri leiknum við Biganos með einu marki, 27:26, og stendur nokkuð vel að vígi MYNDATEXTI Elísabet Gunnarsdóttir, línumaður Stjörnunnar, og félaga hennar bíður erfitt verkefni á morgun gegn franska liðinu U.S. Mios Biganos í Mýrinni eftir eins marks tap ytra um síðustu helgi. Elísabet hefur nýlega jafnað sig af handarbroti og er óðum að ná fyrri styrk.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar