Leikskólinn Vinagerði í borgarferð

Leikskólinn Vinagerði í borgarferð

Kaupa Í körfu

GOTT er að hafa góðan fylgdarmann þegar gengin er lífsins leið og göngutúrar í fallegu umhverfi gera sálartetrinu gott hvort sem gamlir eða ungir eiga í hlut. Endurskinsvestin eru nauðsynlegur fatnaður nú um stundir því í skammdeginu sækja skuggarnir fast á. Blaut jörðin gerir það líka nauðsynlegt að vera í góðum pollagalla til að verjast vætunni. Eftir hverja lægðina á fætur annarri að undanförnu hefur í nokkra daga verið stund milli stríða á suðvesturhorninu. Í dag er spáð vaxandi suðaustanátt, 10-15 metrum á sekúndu, og fer að rigna sunnan- og vestanlands síðdegis en hægari vindur verður fyrir norðan og austan og þurrt. Veður fer hlýnandi.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar