Mugison

Halldór Sveinbjörnsson

Mugison

Kaupa Í körfu

Það gekk ekki þrautalaust að koma Mugiboogie, þriðju breiðskífu Mugisons, heilli til hafnar. Blóðið, svitinn og tárin virðast þó vera að borga sig margfalt en platan hefur fengið stórgóðar viðtökur, jafnt hjá lærðum sem leikum og rennur í þessum töluðu orðum eins og heitar lummur út úr plötuverslunum og af vefsvæði Mugisons sjálfs. Arnar Eggert Thoroddsen sótti listamanninn heim síðasta þriðjudag en sama kvöld héldu Mugison og sveit hans útgáfutónleika í Edinborgarhúsinu á Ísafirði. MYNDATEXTI Í sviðsljósinu Þétt skipaður salur af fólki fylgist með Mugison á kynningartónleikunum á Ísafirði.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar