Ragna Ingólfsdóttir

Ragna Ingólfsdóttir

Kaupa Í körfu

RAGNA Ingólfsdóttir vann í gær tvöfaldan sigur á alþjóðlegu badmintonmóti sem fram fór í TBR-húsinu um helgina. Ragna hrósaði sigri í einliðaleik og í tvíliðaleik ásamt Katrínu Atladóttur. Þetta var annar sigur Rögnu í einliðaleik á alþjóðlegu móti en hún varð hlutskörpust á móti í Ungverjalandi á dögunum. Ragna stefnir að því að komast á Ólympíuleikana í Peking á næsta ári og með sama áframhaldi ætti hún að eiga góða möguleika á því. Á myndinni mundar Ragna spaðann í úrslitaleiknum

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar