Ragna Ingólfsdóttir

Ragna Ingólfsdóttir

Kaupa Í körfu

RAGNA Ingólfsdóttir, Íslandsmeistari í badminton úr TBR, er komin á mikla siglingu á ný í baráttu sinni um að komast inn á Ólympíuleikana í Kína á næsta ári. Ragna sigraði tvöfalt á alþjóðlega Iceland Express-mótinu í gær og hefur nú sigrað á tveimur mótum í röð á Evrópumótaröðinni. Sem kunnugt er varð Ragna fyrir áfalli síðastliðið vor þegar hún sleit krossband í hné. Henni virðist hafa tekist að vinna bug á meiðslunum án þess að fara í aðgerð. MYNDATEXTI Ragna Ingólfsdóttir úr TBR hefur sigrað á tveimur alþjóðlegum badmintonmótum í röð.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar