KR fær nýjan leikmann

Brynjar Gauti

KR fær nýjan leikmann

Kaupa Í körfu

,,MÉR fannst ég þurfa á breytingu og nýrri áskorun að halda og það er aðalástæðan fyrir því að ég er kominn til KR. Ég tók mér góðan tíma til að fara yfir stöðuna. Það voru fleiri lið inni í myndinni en mér leist best á KR, þá umgjörð sem það hefur og þjálfarateymið," sagði knattspyrnumaðurinn Jónas Guðni Sævarsson, við Morgunblaðið, eftir að hafa skrifað undir þriggja ára samning við KR í gær. KR náði samkomulagi við Keflvík um að leysa Jónas undan samningi en hann var samningsbundinn Suðurnesjaliðinu, sem hann hefur leikið með allan sinn feril, út næsta tímabil. MYNDATEXTI Jónas Guðni Sævarsson úr Keflavík gekk í gær til liðs við KR. Hann er hér ásamt Rúnari Kristinssyni og Loga Ólafssyni.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar