KR - Stjarnan

Golli / Kjartan Þorbjörnsson
Fleiri myndir eftir ljósmyndara »

KR - Stjarnan

Kaupa Í körfu

SKOTNÝTINGIN var skrautleg í DHL-höllinni í Vesturbænum í gærkvöldi þegar nýliðar Stjörnunnar sóttu Íslandsmeistara KR heim. Vesturbæingar, sem guldu afhroð við Keflavíkingum, ætluðu sér að skora fullt af stigum í hverri sókn svo að óðagotið varð heldur mikið á meðan Garðbæingar reyndu að finna taktinn, sem skilaði þeim sigri á Njarðvík í síðasta leik, stóðu vörnina ágætlega en hittu ekkert betur en heimamenn. Það var því ekki fyrr en á lokasprettinum að KR seig framúr og vann 70:63. MYNDATEXTI Fannar Ólafsson úr Íslandsmeistaraliði KR reynir hér að troða gegn nafna sínum Helgasyni hjá nýliðum Stjörnunnar, sem náði að verjast því.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar