Skólaskipið Dröfn með nemendur úr Lindaskóla

Skólaskipið Dröfn með nemendur úr Lindaskóla

Kaupa Í körfu

Krökkunum úr Lindaskóla fannst gaman að kynna sér sjávarútveginn um borð í skólaskipinu Dröfn RE Það var líf og fjör um borð í skólaskipinu Dröfn RE í gær. Um tugur nemenda úr Lindaskóla í Kópavogi var þar að kynna sér sjávarútveginn, veiðar og aðgerð á fiski. Nemendurnir voru mjög áhugasamir og drukku í sig fróðleikinn og ekki spillti fyrir að fá fisk í soðið með sér heim að lokinni veiðiferð út á Sundin. MYNDATEXTI: Gert að fiskinum Krökkunum fannst greinilega gaman, en pínulítið ógeðslegt að fást við fiskinn, en sýndu þó snör og fagmannleg handbrögð.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar