Styrktarfélag krabbameinssjúkra barna og Icelandair

Guðmundur Rúnar Guðmundsson

Styrktarfélag krabbameinssjúkra barna og Icelandair

Kaupa Í körfu

SKRIFAÐ hefur verið undir samstarfssamning milli Icelandair og Styrktarfélags krabbameinssjúkra barna (SKB) þess efnis að flugfélagið muni fljúga með börn á vegum samtakanna í ævintýraferðir til útlanda. Það voru Óskar Örn Guðbrandsson, framkvæmdastjóri SKB og Gunnar Már Sigurfinnsson, framkvæmdastjóri sölu- og markaðssviðs Icelandair, sem skrifuðu undir samninginn sem er til fimm ára. Við undirritunina var viðstödd Snædís Björt Ágústsdóttir sem tvívegis hefur tekið þátt í ferðum Icelandair og SKB, nú síðast til Danmerkur þar sem Legoland var heimsótt. Snædís lýsti yfir mikilli ánægju með ferðirnar, ekki síst Legoland þar sem hún fór í hin ýmsu leiktæki. Hún hlakkar jafnframt mikið til að fljúga á vit ævintýranna á nýjan leik.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar