Sænautasel á Jökuldalsheiði

Albert Kemp

Sænautasel á Jökuldalsheiði

Kaupa Í körfu

Jökuldalsheiði | Á dögum myrkurs á Austurlandi var einn af mörgum og fjölbreyttum dagskrárliðum sviðaveisla hjá Lilju Óladóttur, húsráðanda í Sænautaseli. Fimmtíu og tveir, börn og fullorðnir, komu þar saman til snæðings á sunnudagskvöld og hófu leika á myrkragöngu um næsta nágrenni og hlýddu á sögur Eyþórs Guðmundssonar úr Jökuldalsheiðinni. Var því næst farið inn í hlýjuna og sest að langborði hrokuðu af sviðum, löppum, hangiketi, bjúgum, slátri, ávaxtagraut og fleira góðmeti í anda heiðarbúa. Undir borðum var lesið upp úr Sjálfstæðu fólki Halldórs Kiljans Laxness og sagðar mergjaðar draugasögur af heiðinni. Þetta er í fimmta sinn sem Lilja býður heim á Dögum myrkurs. Fyrst kom einn gestur en nú er fullt út úr dyrum. Sænautasel er endurgert heiðarbýli þar sem búið var nær samfellt frá árinu 1843 til 1943. MYNDATEXTI Kynjadýr ber í kertalog í myrkri við Sænautasel.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar