Leiðsögumenn

Helgi Bjarnason

Leiðsögumenn

Kaupa Í körfu

Reykjanesbær | Reykjanesbær hefur gert menningarsamning við Leiðsögumenn Reykjaness fyrir komandi ár. Leiðsögumenn eru þrettánda félagið sem bærinn gerir samstarfssamning við en samningnum fylgir fastur árlegur styrkur, 150 þúsund kr. Árni Sigfússon, bæjarstjóri Reykjanesbæjar, og Bergur Sigurðsson, fulltrúi Leiðsögumanna Reykjaness, skrifuðu undir samninginn við athöfn sem haldin var vegna úthlutunar menningarverðlauna Reykjanesbæjar. Félagið tekur þátt í verkefnum sem varða menningar- og ferðamál í Reykjanesbæ. Leiðsögumenn munu hafa frumkvæði að því að efla og styrkja umræðu um sögu og náttúru bæjarfélagsins, að því er fram kemur í samningnum.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar