Grýla er komin í Borgarnes

Guðrún Vala Elísdóttir

Grýla er komin í Borgarnes

Kaupa Í körfu

Hafi einhver haldið að jólin byrjuðu á höfuðborgarsvæðinu þá leiðréttist það hér með. Því á föstudaginn byrjuðu jólin í Borgarnesi með því að þjónustufyrirtæki kveiktu á jólaljósunum og bærinn varð baðaður jólaljósum í einu vetfangi. Meira að segja Grýla lét sig hafa það að klöngrast ofan af fjöllum en naut þó aðstoðar Björgunarsveitarinnar til að komast til byggða MYNDATEXTI Grýla kerlingin lét sjá sig í Borgarnesi á föstudaginn þegar að jólaljósin voru tendruð í bænum.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar