VM

VM

Kaupa Í körfu

VM félag vélstjóra og málmtæknimanna hélt fund með pólskum starfsmönnum þriðjudaginn 20. nóvember sl. Í tilkynningu frá VM kemur fram að atvinnurekandi nokkurra pólskra starfsmanna, sem sóttu fundinn, hafi mætt á fundinn og gert tilraun til að reka starfsmenn sína af fundinum, en þeir sátu sem fastast. Að lokum þurfti að vísa atvinnurekandanum og fylgdarmanni hans úr fundarsal. Starfmenn félagsins stóðu í nokkru stappi við atvinnurekandann sem sífellt krafðist þess að starfsmennirnir færu af fundinum og vísaði til félagafrelsis í því sambandi. Hann yfirgaf þó fundinn áður en til þess kæmi að lögreglan væri kölluð til.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar