Nýr vefur opnaður - www.netsvar

Brynjar Gauti

Nýr vefur opnaður - www.netsvar

Kaupa Í körfu

OPNAÐUR hefur verið vefurinn www.netsvar.is þar sem finna má spurningar og svör um jákvæða og örugga netnotkun. Vefurinn er samstarfsverkefni SAFT-verkefnisins hjá Heimili og skóla, Póst- og fjarskiptastofnunar og Barnaheilla. Við opnunina kynntu María Kristín Gylfadóttir, formaður Heimilis og skóla, Hrafnkell V. Gíslason, forstjóri PFS, og Petrína Ásgeirsdóttir, framkvæmdastjóri Barnaheilla, vefinn og samstarfið. Síðan opnuðu tvö ungmenni úr Lækjarskóla í Hafnarfirði, þau Birgitta Björg Jónsdóttir og Alexander Arason, vefinn formlega fyrir almenna notkun.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar