ækifæri til viðskipta

ækifæri til viðskipta

Kaupa Í körfu

Trevor Taylor, viðskiptaráðherra Nýfundnalands, sagði Soffíu Haraldsdóttur að efla þyrfti tengsl fyrirtækja og menntastofnana á Íslandi og í fylkinu. BYGGINGAREFNI er meðal margvíslegra vörutegunda sem Íslendingar gætu flutt inn frá Nýfundnalandi en þar er talsvert umframframboð á viði, að sögn Trevors Taylors, ráðherra viðskipta- og byggðamála á Nýfundnalandi og Labrador. Um helgina fer fram í Perlunni sölusýningin Komdu og upplifðu... Nýfundnaland og Labrador en þar kynnir 31 fyrirtæki frá Nýfundnalandi og Labrador vörur sínar og þjónustu. Að vísu er ekkert fyrirtæki sem framleiðir byggingarefni þeirra á meðal en til dæmis verður kynnt ferðaþjónusta, gjafavörur, tónlist og fatnaður. Þá verða menningartengdir viðburðir sem tengjast Nýfundnalandi og Labrador um alla borg. MYNDATEXTI Tækifæri til viðskipta Vörur og þjónusta frá Nýfundnalandi eru kynntar á sölusýningunni í Perlunni, svo sem elgsveiðiferðir, listmunir og handverk.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar