Trio Nordica

Trio Nordica

Kaupa Í körfu

ÉG var nú bara að átta mig á ákveðinni heildarmynd tónleikanna fyrir tveimur dögum. Það vill svo til að öll verkin eru í g-moll, öll hádramatísk og öll hárómantísk. Ég held ég hafi aldrei spilað jafn dramatíska efnisskrá, segir Auður Hafsteinsdóttir fiðluleikari í Tríó Nordica, en tríóið, Auður, Bryndís Halla Gylfadóttir sellóleikari og Mona Sandström píanóleikari, heldur tónleika í Kammermúsíkklúbbnum í Bústaðakirkju, annað kvöld kl. 20, ásamt gestum sínum, Pálínu Árnadóttur fiðluleikara og Iben Bramsnes Teilmann víóluleikara. Auður segir nánar frá verkunum dramatísku: MYNDATEXTI Bryndís Halla Gylfadóttir, Iben Bramsnes Teilmann, Pálína Árnadóttir, Auður Hafsteinsdóttir og Mona Sandström. Þær Pálína og Iben eru gestir tríósins á tónleikunum í Kammermúsíkklúbbnum annað kvöld.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar