Verðlaun fyrir fyrstu 8 umferðirnar í Iceland Express deild karl

Sverrir Vilhelmsson

Verðlaun fyrir fyrstu 8 umferðirnar í Iceland Express deild karl

Kaupa Í körfu

BOBBY Walker, leikmaður Keflvíkinga í Iceland Express-deild karla í körfuknattleik, hefur staðið sig best allra í fyrstu átta umferðum deildarinnar. Körfuknattleikssambandið verðlaunaði í gær þá sem skarað hafa fram úr það sem af er deildinni og tilkynnti lið fyrstu átta umferðanna. Í því eru auk Walkers þeir Óðinn Ásgeirsson úr Þór á Akureyri, Páll Axel Vilbergsson, Grindavík, Dimitar Karadzovski, Stjörnunni og Jón Nordal Hafsteinsson, Keflavík. Sigurður Ingimundarson, landsliðsþjálfari og þjálfari Keflvíkinga, var valinn besti þjálfarinn og Sigmundur Már Herbertsson besti dómarinn, en hann dæmir fyrir Njarðvík.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar