Rautt

Brynjar Gauti

Rautt

Kaupa Í körfu

Það eru fleiri en jólasveinarnir sem hafa leyfi til að klæðast rauðu í jólamánuðinum. Desember er nefnilega rétti tíminn fyrir konur að leyfa rauðkunni innra með sér að brjótast úr viðjum litleysisins. Þessi ástríðufulli litur hentar aldeilis vel til að hleypa hita á frostbitinn kropp og sál um leið og hann gleður augað. Séu kinnarnar eða nebbinn rjóður í verslunarferðunum framundan er bara um að gera að bera slíkt með stolti, skella á sig rauðum varalit í stíl, sveipa rauðu kápunni um sig og smeygja köldum tám í glansandi rauða hátískuskó. Góða skemmtun. MYNDATEXTI Gegn kulda Hlý og notaleg á búðarrápi. Oasis, 17.990 kr.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar