Fram - Stjarnan

Brynjar Gauti

Fram - Stjarnan

Kaupa Í körfu

ÍSLANDSMEISTARAR Stjörnunnar í handknattleik kvenna töpuðu sínum fyrsta leik í N1-deildinni á þessari leiktíð í gærkvöldi þegar liðið heimsótti hið unga lið Fram í Safamýrina. Guðrún Þóra Hálfdánsdóttir réð úrslitum í leiknum þegar hún skoraði laglegt mark úr hægra horninu, rétt áður en lokaflautið gall. Fram sigraði, 21:20, og hefur sautján stig á toppi deildarinnar en Stjarnan er með fimmtán. MYNDATEXTI Anett Köbli leikmaður Fram sækir að vörn Stjörnunnar og til varnar er Rakel Dögg Bragadóttir.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar