Brynhildur Þórarinsdóttir

Skapti Hallgrímsson

Brynhildur Þórarinsdóttir

Kaupa Í körfu

Nonni og Selma eru tvíburar. Ekki þó venjulegir tvíburar heldur afmælistvíburar, bæði fædd hinn sautjánda júní, hvort í sínum landshlutanum. Rúmum sex árum síðar byrja þau í sama fyrsta bekknum og kynnast fyrst í gegnum misskilning kennara sem heldur þau raunverulega tvíbura. Í kjölfarið eru þau óaðskiljanleg, ala upp ánamaðka með bekknum sínum, fela fræga ketti, stunda leynilögreglustörf og fleira skemmtilegt. Nonni og Selma er barnabók eftir Brynhildi Þórarinsdóttur sem hlaut Norrænu barnabókaverðlaunin í sumar fyrir endursagnir sínar á fornsögnunum fyrir börn. MYNDATEXTI Við andapollinn Hér fundu sögupersónur Brynhildar kenjóttan kött rétt áður en þau duttu bæði í andapollinn.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar