Lay Low

Skapti Hallgrímsson

Lay Low

Kaupa Í körfu

TÓNLISTARKONAN Lay Low, Lovísa Elísabet Sigrúnardóttir, hefur ánafnað Aflinu á Akureyri ágóða sínum af sölu geisladisks með tónlistinni úr leikritinu Ökutímum sem nú er sýnt hjá Leikfélagi Akureyrar. Diskurinn kemur út í janúar. Í sýningunni er fjallað um líf konu sem varð fyrir kynferðislegri misnotkun sem barn og segist Lovísa vilja nota tækifærið og leggja sitt af mörkum til baráttunnar og umræðunnar gegn kynbundnu ofbeldi. LA hefur einnig ákveðið að gefa ágóðahlut sinn af síðustu sýningu ársins á Ökutímum til Aflsins. Á myndinni, sem tekin var í gærkvöldi, eru Lay Low, lengst til hægri, og Anna María Hjálmarsdóttir (t.v.) og Viktoría Jóhannsdóttir, frá Aflinu.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar