Helgileikur Grafarvogskirkju

Friðrik Tryggvason

Helgileikur Grafarvogskirkju

Kaupa Í körfu

STARF sunnudagaskólanna er öflugt á aðventunni og tíminn notaður til undirbúnings jólahátíðinni. Í Grafarvogi taka vel á annað hundrað barna þátt í sunnudagaskólanum. Í gærmorgun var helgileikur í sunnudagaskóla Grafarvogskirkju í sal Borgarholtsskóla. Barna- og unglingakór Grafarvogskirkju flutti trúarlegan sjónleik undir stjórn Svövu Kristínar Ingólfsdóttur. Helgileikurinn er eftir danska kórstjórann og tónskáldið John Høybye. Aðalheiður Þorsteinsdóttir lék undir. Foreldrar og börn tóku virkan þátt í athöfninni og þátttakendur lifðu sig inn í hlutverk sín.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar