Blysganga

Friðrik Tryggvason

Blysganga

Kaupa Í körfu

SLÖKKT hefur verið á friðarsúlu Yoko Ono í Viðey, en friðarsúlan logar frá fæðingardegi Johns Lennon 9. október ár hvert til og með dánardegi hans 8. desember. Fjölbreytt dagskrá var í Viðey af þessu tilefni á laugardag. Listasafn Reykjavíkur gekkst fyrir listasmiðju undir yfirskriftinni Minn friður þinn friður, en þar gafst allri fjölskyldunni tækifæri til að skapa sín eigin friðarljós og friðarkveðjur. Þá var friðarstund í Viðeyjarkirkju og Dómkórinn söng, en að því loknu var gengið með kyndla að listaverkinu. Þá tóku ungmenni frá ýmsum löndum höndum saman um friðarsúluna, en þar var um að ræða skiptinema á vegum AFS, en samtökin fagna um þessar mundir 60 ára afmæli sínu og 50 ára starfsafmæli á Íslandi.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar