Lakkrísmyndlist

Lakkrísmyndlist

Kaupa Í körfu

Myndlistaskólanum í Reykjavík sitja fimm krakkar í kringum borð sem svignar undan sælgæti. Þarna eru lakkrísrenningar á stærð við diskamottur og skálar fullar af hlaupkúlum og slöngum frá Kólus og Nóa-Síríus. Krakkarnir eru niðursokknir í að skapa litrík, ilmandi og væntanlega ljúffeng listaverk úr góðgætinu. Þau eru öll blind eða sjónskert og nemendur á myndlistarnámskeiði þar sem unnið er á þeirra forsendum. Hér ræður áferð efniviðarins ferðinni, lykt hans og lögun. MYNDATEXTI Fjölbreytt listaverk úr sælgæti verða til hjá nemendunum fimm við borðið. Fyrir framan kennarana Gerði Leifsdóttur og Margréti H. Blöndal standa frá vinstri: Vaka Rún Þórsdóttir, Íva Marín Adrichem og Ólafur Einar Ólafsson. Fremst sitja þær Snæfríður Ingadóttir og Áslaug Ýr Hjartardóttir.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar