Þýfi gert upptækt

Júlíus Sigurjónsson
Fleiri myndir eftir ljósmyndara »

Þýfi gert upptækt

Kaupa Í körfu

LÖGREGLAN á höfuðborgarsvæðinu fann þýfi í húsi í austurborg Reykjavíkur við húsleit í gærmorgun og er þar meðal annars um að ræða þýfi sem tekið var í Austurbæjarskólanum um síðustu helgi. Frem kemur á vef lögreglunnar að um síðastliðna helgi var verðmætum fyrir u.þ.b. eina milljón króna stolið úr Austurbæjarskóla. Um var að ræða m.a. myndavélar, tölvur og myndvarpa. Ekki voru ummerki um innbrot og því ekki ólíklegt talið að þeir aðilar sem komu að þjófnaðinum hafi komist yfir lykla af skólanum. Nokkrir hafa verið yfirheyrðir vegna málsins og fannst hluti þýfisins við húsleit í framhaldinu og einnig átta útieftirlitsmyndavélar og flatskjár, að því er fram kemur.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar