Landspítali

Landspítali

Kaupa Í körfu

Þrengsli há gjörgæsludeild Landspítala við Hringbraut ÞEGAR flytja á sjúklinga til og frá gjörgæsludeild Landspítalans við Hringbraut þarf að beita mikilli útsjónarsemi. Lyftur sem sjúklingar eru fluttir í milli t.d. skurðstofa og gjörgæslu eru svo litlar að ekki er pláss fyrir bæði sjúkrarúm og lífsnauðsynlegar vélar sem sjúklingunum fylgja. Starfsfólkið deyr þó ekki ráðalaust, setur sjúklinginn í rúminu í eina lyftu, blæs í hann lofti og hleypur svo með öndunarvélina í næstu lyftu og tengir hana við sjúklinginn þegar á leiðarenda er komið. Það sér hver maður að þessi aðstaða gengur ekki upp, sagði Guðlaugur Þór Þórðarson heilbrigðisráðherra, sem heimsótti gjörgæsludeildina í gær MYNDATEXTI

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar