Baldursgata

Baldursgata

Kaupa Í körfu

Segir að skipulagsyfirvöld fari vel yfir athugasemdir sem berist vegna skipulags á Baldursgötureit SKIPULAGSYFIRVÖLD í borginni munu fara rækilega yfir athugasemdir sem berast vegna tillögu að deiliskipulagi á svonefndum Baldursgötureit, að sögn Jóhannesar S. Kjarvals, arkitekts hjá skipulagsstjóra Reykjavíkurborgar. Hann hefur þegar fengið í hendur tvær athugasemdir vegna tillögunnar, en samkvæmt henni á að heimila niðurrif tveggja húsa við Baldursgötu og að byggt verði ofan á fleiri hús á reitnum, sem afmarkast af Freyjugötu, Baldursgötu, Þórsgötu og Njarðargötu. MYNDATEXTI: Víki Frumtillagan gerir ráð fyrir að húsin á Baldursgötu 32 og 34, sem hér sjást, verði rifin, og að þriggja hæða bygging rísi þar í staðinn.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar