Peter Weiss

Ljósmynd/Halldór Sveinbjörnsson

Peter Weiss

Kaupa Í körfu

Framtíðarsýn Háskólaseturs Vestfjarða gerir ráð fyrir að setrið einbeiti sér að málefnum hafsins og strandsvæða almennt í sem víðustum skilningi, segir Peter. Nálægðin við hafið hefur gert það að verkum að á svæðinu er umtalsverð þekking til staðar hvað þessi málefni varðar, bæði í samfélaginu almennt t.d. hjá fyrirtækjum í sjávarútvegi og tengdum greinum en ekki síður hjá þeim rannsóknarstofnunum sem eru starfandi á svæðinu. Nýja námið er þverfaglegt auðlindastjórnunarnám þar sem áhersla er lögð á hafið og ströndina en sérhæft nám sem snýr að þessum mikilvægu svæðum hefur ekki verið í boði á Íslandi fyrr.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar