Landsliðið í Knattspyrnu í Khöfn 2001

Skapti Hallgrímsson

Landsliðið í Knattspyrnu í Khöfn 2001

Kaupa Í körfu

JON Dahl Tomasson, framherjinn snjalli í danska landsliðinu og leikmaður Feyenoord í Hollandi, vill ekki mikið velta sér upp úr tengslum sínum við Ísland. Tomasson á ættir að rekja til Íslands en afi hans var Íslendingur, fæddur og uppalinn í Hafnarfirði. Hann stundaði sjómennsku á sínum yngri árum en hóf síðan siglingar og fluttist til Danmerkur ungur að aldri. Afi Jon Dahls kvæntist dansk/finnskri konu og saman eignuðust þau Bjarne Tomasson sem er faðir Jon Dahls. Bjarne hefur alla sína tíð búið í Danmörku en segist hafa komið nokkrum sinnum í heimsókn til Íslands og í viðtali við Jyllands Posten segist hann hafa taugar til Íslands. MYNDATEXTI: Íslensku landsliðsmennirnir fóru í gönguferð um Kristjaníu í Kaupmannahöfn í gærmorgun. Hér eru þeir Arnar Grétarsson, Tryggvi Guðmundsson, Hermann Hreiðarsson, Eiður Smári Guðjohnsen og Pétur Hafliði Marteinsson að skoða varning sem þar var á boðstólum.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar