Organ

Organ

Kaupa Í körfu

HIN ofursvala hljómsveit Singapore Sling hélt sína árlegu janúartónleika á veitingastaðnum Organ við Hafnarstræti á fimmtudagskvöld. Um upphitun sá hljómsveitin Bacon sem nú státar af viðskeytinu Live Support Unit, en innan þeirrar sveitar eru margir neðanjarðarreynsluboltar. Singapore Sling heldur í tveggja vikna tónleikaferðalag þann 21. janúar til Þýskalands, en ferðin er farin til að kynna safnplötuna The Curse The Life The Blood sem inniheldur lög af þremur áður útgefnum skífum sveitarinnar. Auk þess að spila á Bassy-tónleikastaðnum í Berlín (bassy-club.de) eru Dresden, Zürich, Salzburg og Hannover á meðal áfangastaða í tónleikaferðalaginu. MYNDATEXTI Mætt Inga Häsler og Þráinn Óskarsson úr Hudson Wayne voru á meðal gesta

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar