Lókal-hópurinn

Guðmundur Rúnar Guðmundsson

Lókal-hópurinn

Kaupa Í körfu

ÞRJÁR erlendar leiksýningar hafa verið valdar til þátttöku í Alþjóðlegu leiklistarhátíðinni Lókal, sem fer fram dagana 6.-9. mars í miðborg Reykjavíkur. Listrænn stjórnandi hátíðarinnar, Elena Krüskemper, hefur undanfarna daga verið að skoða íslenskar leiksýningar en þó hefur ekki verið endanlega ákveðið hverjar verða á hátíðinni eða hversu margar. Föstudaginn sl. fylgdist Krüskemper m.a. með æfingu á nýjustu afurð Hugleiks Dagssonar, Baðstofunni, í Þjóðleikhúsinu. MYNDATEXTI Skipuleggjendur Lókal Guðrún Jóhanna Guðmundsdóttir, Ragnheiður Skúladóttir, Bjarni Jónsson, Elena Krüskemper og Egill Ingi Bergsson.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar