Þröstur

Þröstur

Kaupa Í körfu

Smáfuglarnir eru sífellt á þönum í leit að æti og hefur fæðuöflunin eflaust reynst þeim erfið í frosti og snjókomu síðustu daga. Þessi litli einbeitti þröstur var á ferðinni við pylsuvagn í miðbæ Reykjavíkur og hefur eflaust haft nokkra brauðmola upp úr krafsinu. Gert er ráð fyrir áframhaldandi frosti um allt land næstu daga og á að kólna víðast hvar þegar líður að helginni. Má því gera ráð fyrir að snjórinn haldist eitthvað fram yfir næstu helgi.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar