Ólafur Stefánsson

Friðrik Tryggvason MBL

Ólafur Stefánsson

Kaupa Í körfu

MÍNIR menn ofmetnuðust eftir góðan leik á móti Frökkum og þegar sú staðreynd bættist við að Ólafur Stefánsson gæti ekki leikið með íslenska landsliðinu gegn okkur þá töldu menn sig eiga sigurinn næsta vísan. Aðra skýringu hef ég ekki í fljótu bragði á frammistöðu minna manna í fyrri hálfleik gegn Íslandi, sagði Zoltán Heister, landsliðsþjálfari Slóvaka í handknattleik, þegar hann var spurður af hverju hans menn hefðu verið eins slakir og raun bar vitni um í fyrri hálfleik gegn Íslendingum á laugardag. Slóvakar skoruðu aðeins 5 mörk, þar af þrjú úr vítakati í fyrri hálfleik.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar