Alþingi 2008

Golli / Kjartan Þorbjörnsson
Fleiri myndir eftir ljósmyndara »

Alþingi 2008

Kaupa Í körfu

GERA þarf frekari ráðstafanir til að þétta eftirlitsnetið með ólögmætri alþjóðlegri starfsemi hér á landi. Þetta kom fram í máli Björns Bjarnasonar, dómsmálaráðherra, á Alþingi í gær en hann mælti fyrir frumvarpi til breytinga á útlendingalögum. Björn vakti athygli á því að dvalarleyfum hefði fjölgað úr tæplega 2.800 í ríflega 13.500 á tíu árum. Flest dvalarleyfi eru gefin út til EES-borgara og um tveir þriðju hlutar þeirra eru karlar. Þá hefur útgáfa ríkisborgararréttar meira en þrefaldast. MYNDATEXTI Dvalarleyfum til útlendinga hér á landi fjölgaði úr 2.800 í 13.500 á tíu árum að því er fram kom í máli Björns Bjarnasonar á Alþingi.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar