Ný heilsulind

Friðrik Tryggvason

Ný heilsulind

Kaupa Í körfu

Heilsuræktarstöðin Hreyfing og Blue Lagoon Spa munu í lok árs opna sameiginlega heilsulind í nýju húsnæði við Glæsibæ í Reykjavík. Þetta verður fyrsta heilsulind sinnar tegundar í heiminum en fram til þessa hafa spa-meðferðir með einstökum, virkum efnum Bláa lónsins einungis verið í boði í Bláa lóninu í Grindavík. Orðrómur hefur verið á kreiki um þessa nýju heilsulind og bíða margir þess spenntir að starfsemin hefjist. Ágústa Johnson, framkvæmdastjóri Hreyfingar, tók því vel að hitta blaðamann og boðaði hann til fundar við sig í hinu nýja húsnæði heilsulindarinnar. MYNDATEXTI: Enginn glymjandi - Sérstaklega verður vandað til hljóðumhverfis.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar