HK - FH 2:2

HK - FH 2:2

Kaupa Í körfu

Jafnaði á síðustu stundu gegn HK-ingum og skoraði bæði mörk meistaranna sem urðu að sætta sig við jafntefli, 2:2, í Kópavogi ÞAÐ verður ekki tekið af HK-ingum að þeir berjast. Sá barningur hefur skilað liðinu miklu í sumar og í gær skilaði hann því einu stigi þegar það tók á móti Íslandsmeisturum FH í frestuðum leik úr 12. umferðinni. Lokatölur urðu 2:2 og Tryggvi Guðmundsson jafnaði fyrir FH undir lok leiks og bjargaði liðinu frá tapi. MYNDATEXTI: Frábær Gunnleifur Gunnleifsson markvörður og fyrirliði HK átti stórgóðan leik í marki Kópavogsliðsins og grípur hér boltann einu sinni sem oftar, áður en Matthías Guðmundsson nær til hans. Ásgrímur Albertsson, miðvörður HK, fylgist með. Gunnleifur náði þó ekki að koma í veg fyrir að FH jafnaði í uppbótartíma.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar