Víkingur - Breiðablik

Víkingur - Breiðablik

Kaupa Í körfu

LEIKMENN Breiðabliks skullu harkalega á jörðina í gær eftir leik liðsins gegn Víkingum í Landsbankadeild karla í knattspyrnu þar sem Víkingar lönduðu sínum fyrsta sigri með miklum yfirburðum 4:1. Blikar voru taplausir fyrir leikinn eftir tvo góða sigra og Víkingar höfðu tapað báðum sínum leikjum naumlega. "Við vorum einfaldlega skotnir á kaf í þessum leik," sagði Bjarni Jóhannsson þjálfari Breiðabliks eftir leikinn en Viktor Bjarki Arnarsson leikmaður Víkings fór á kostum í leiknum og skemmti áhorfendum með leikni sinni. MYNDATEXTI Marel Baldvinsson, leikmaður Breiðabliks, varð að sætta sig við 4:1-tap gegn Viktori Bjarka Arnarssyni og félögum úr Víkingi í nýliðaslagnum þar sem Viktor skoraði tvívegis en Marel einu sinni.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar