Vör

Alfons Finnsson

Vör

Kaupa Í körfu

VÖR, Sjávarrannsóknasetrið við Breiðafjörð, hefur flutt í nýtt húsnæði á Norðurtanga 3 í Ólafsvík. Um er að ræða140 fermetra rannsókna- og skrifstofuaðstöðu. Áður var Vör til húsa á Ennisbraut 1. Erla Björg Örnólfsdóttir, forstöðumaður Varar, segir í samtali við Morgunblaðið að þetta húsnæði gerbylti allri aðstöðu. ,,Við erum með tvær rannsóknarstofur, tvær skrifstofur, en auk þess erum við með góða kaffiaðstöðu þar sem einnig má halda minni fundi. MYNDATEXTIÍ nýju húsnæði. Starfsmenn Varar eru fjórir, Erla Björk Örnólfsdóttir, Karen Olsen, Christina Stadler og Stefán Á. Arngrímsson.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar