Ívar Valgarðsson i8

Valdís Thor

Ívar Valgarðsson i8

Kaupa Í körfu

Í SINNI síðustu kvikmynd, Blue (1993), gekk breski kvikmyndagerðarmaðurinn Derek Jarman svo langt að sýna eingöngu bláan lit á kvikmyndatjaldinu í eina klukkustund og sautján mínútur. Og á meðan greindi listamaðurinn, sem kominn var með alnæmi á háu stigi, frá því hvernig hann nálgaðist dauðann. Blái liturinn, táknrænn fyrir sorg og eftirsjá, rótaði þá í sálartetri áhorfandans í bland við prósakennda frásögn Jarmans. MYNDATEXTI Framköllun litar .. á vegg sést skjámynd af málningunni í beinni útsendingu, segir meðal annars í dómi.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar