Fuglum gefið í frosthörku

Fuglum gefið í frosthörku

Kaupa Í körfu

LANDSMENN fundu fyrir mestu gaddhörku vetrarins í gær og kólnaði eftir því sem leið á daginn. Veðurstofan gerði ráð fyrir að kuldakastið næði hámarki í nótt sem leið og árla dags í dag. Frostið færi víða niður fyrir 20 stig inn til landsins sunnan- og vestanlands, en síðan færi að hlýna á ný. Í gær gekk á með éljum á Norður- og Austurlandi en annars staðar var léttskýjað. Haraldur Eiríksson, veðurfræðingur á Veðurstofunni, sagði að áfram yrði éljagangur fyrir norðan og sums staðar mætti búast við stanslausri snjókomu en seinni partinn færi að draga úr frostinu. Spáin fyrir nóttina og morguninn var frá um 10 stiga frosti úti við sjóinn og niður fyrir 20 stig í innsveitum. | 6

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar