Sundlaugin í Borgarnesi

Sundlaugin í Borgarnesi

Kaupa Í körfu

SUNDLAUGARNAR á Akranesi og Borgarnesi eru lokaðar og verða ekki opnaðar fyrr en eftir helgi þegar kuldakastinu er lokið. Ákvörðun um að loka var tekin í öryggisskyni eftir að vatnsborð í heitavatnsgeymum hafði lækkað mjög í kjölfar rekstrartruflana um síðustu helgi. Ekki er útilokað að til frekari skerðinga komi næstu daga. Stöðuna nú má rekja til rafmagnsleysis í óveðrinu um síðustu helgi. Þá stöðvuðust dælur og í kjölfarið lækkaði mjög í heitavatnsgeymum. Eftir að dælur fóru af stað brast aðalæð sem leiddi til þess að vatnsborð í tönkum lækkaði enn frekar.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar