Bónus opnar úti á Granda

Bónus opnar úti á Granda

Kaupa Í körfu

NÝ Bónusverslun verður opnuð á Fiskislóð í vesturbæ Reykjavíkur í dag, laugardaginn 2. febrúar kl. 10. Boðið verður upp á fjölda opnunartilboða, segir í tilkynningu frá versluninni. Bónus lokaði versluninni á Hrólfsskálamel á Seltjarnarnesi í þessari viku. Húsið sem verslunin var í verður að víkja fyrir íbúðabyggð. Verslunin á Fiskislóð er heldur stærri en sú sem var á Seltjarnarnesi og hentar ljómandi vel sem Bónusverslun að sögn Guðmundar Marteinssonar, framkvæmdastjóra Bónuss. Verslunin er um 850 fermetrar og með rúmgóðum göngukælum fyrir mjólk og kjöt annars vegar og grænmeti og ávexti hins vegar.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar