Bjarki Lúðvíksson

Friðrik Tryggvason

Bjarki Lúðvíksson

Kaupa Í körfu

MERKI ýmiss konar eru allt í kringum okkur og við veitum þeim sjálfsagt fæst mikla eftirtekt. Það á ekki síst við um merki fyrirtækja en til þess er sjálfsagt leikurinn gerður, að merkin smjúgi inn í vitund okkar og festi sig þar kirfilega, eða þar til fyrirtækið ákveður að skipta um nafn og taka upp annað merki. Slík merki, jafnan kölluð lógó í auglýsingabransanum, eru úthugsuð og að baki þeim liggur mikil hönnunarvinna og vangaveltur. En hvað er gott lógó? Merki Samtakanna '78 hlýtur að vera það, enda komst það í fyrra í eina virtustu söfnunarbók um bestu lógó Evrópu, Eulda. Sá sem hannaði merkið heitir Bjarki Lúðvíksson MYNDATEXTI Lógó-maðurinn Bjarki Lúðvíksson við skrifborðið sitt í Hvíta húsinu.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar