Alfreð Garðarsson

Helga Mattína Björnsdóttir

Alfreð Garðarsson

Kaupa Í körfu

"ÞAÐ er bara bræla og aftur bræla. Það er ekkert annað þessa dagana. Við getum rétt skotizt út á sjó á milli, en vonandi fer þetta nú að ganga niður. Seinni hluti janúar og nánast allur febrúar hefur verið mjög erfiður. Við erum að brasa með eina til þrjár trossur í sjó og skutlast í þær á milli lægða, missa niður trossur og tómt vesen bara. Brjálaður straumur og alltaf stórviðri," segir Alfreð Garðarsson, stýrimaður á Þorleifi EA frá Grímsey. MYNDATEXTI: Sjósókn Alfreð Garðarsson stýrimaður með tvo væna þorska.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar