Undirritun kjarasamninga í Karphúsinu

Undirritun kjarasamninga í Karphúsinu

Kaupa Í körfu

KJARASAMNINGAR aðildarsamtaka Alþýðusambands Íslands (ASÍ) og Samtaka atvinnulífsins (SA) voru undirritaðir í gærkvöldi. Í þeim er kveðið á um miklar hækkanir lægstu launa með töluverðri hækkun kauptaxta og launabreytingar fyrir þá sem setið hafa eftir í launaskriði undanfarinna missera, eins og segir í kynningu ASÍ á efnisatriðum samninganna. MYNDATEXTI Brúnin léttist á samningamönnum í gærkvöldi þegar skrifað var undir kjarasamninga í Karphúsinu, enda langri samningalotu lokið. Vilhjálmur Egilsson, Samtökum atvinnulífsins, Ingimundur Sigurpálsson, SA, Grétar Þorsteinsson, ASÍ, og Ingibjörg R. Guðmundsdóttir vörpuðu öndinni léttar. Ásmundur Stefánsson ríkissáttasemjari brosti líka

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar