Pétur Ágústsson
Kaupa Í körfu
AÐ öllu óbreyttu munu ferðir ferjunnar Baldurs yfir Breiðafjörð leggjast af yfir vetrartímann frá lokum ársins 2009. Eftir það er einungis gert ráð fyrir tveimur ferðum í viku til og frá Flatey. Í gildi er samningur á milli Vegagerðarinnar og Sæferða ehf í Stykkishólmi um ferjusiglingar yfir Breiðafjörð og rennur sá samningur út í lok ársins 2010 með framangreindum hætti. Það hefur verið skoðun innan Vegagerðarinnar að vegasamband um Barðaströnd verði orðið eða sé nánast að verða það gott að ferjan Baldur sé óþörf. Pétur Ágústsson, framkvæmdastjóri Sæferða, segir ekki annað í stöðunni en að heilsársferðir yfir Breiðafjörð verði aflagðar. Þegar samningur við Vegagerðina rennur út verða engir styrkir greiddir fyrir ferjusiglingar. Hann segir að styrkir til ferjunnar Baldurs hafi farið að skerðast á síðasta ári. MYNDATEXTI Pétur Ágústsson segir Baldur lífæð svæðisins
Arnþór Birkisson
Skoða myndirÁrni Sæberg
Skoða myndirÁsdís Ásgeirsdóttir
Skoða myndirEggert Jóhannesson
Skoða myndirEmilía Björg Björnsdóttir
Skoða myndirGolli / Kjartan Þorbjörnsson
Skoða myndirJúlíus Sigurjónsson
Skoða myndirKristinn Ingvarsson
Skoða myndirKristinn Magnússon
Skoða myndirÓlafur K. Magnússon
Skoða myndirÓmar Óskarsson
Skoða myndirRax / Ragnar Axelsson
Skoða myndirHelgi Sigurðsson
Skoða myndirÍvar Valgarðsson
Skoða myndirKristinn Pálsson
Skoða myndir